tag:blogger.com,1999:blog-5041779452834848835.post4096843652059149411..comments2024-03-06T04:46:25.367+00:00Comments on Röggi: Er beiting valds alltaf misbeiting?Röggihttp://www.blogger.com/profile/06354936739033183551noreply@blogger.comBlogger4125tag:blogger.com,1999:blog-5041779452834848835.post-1938617496529612562008-07-30T17:40:00.000+00:002008-07-30T17:40:00.000+00:00Já, það er orðið ansi hart í ári þega nefndir skil...Já, það er orðið ansi hart í ári þega nefndir skila af sér meðalmennsku álitum.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-5041779452834848835.post-45486078710242973962008-07-30T16:27:00.000+00:002008-07-30T16:27:00.000+00:00það má reyndar segja Ólafi F. Magnússyni til hróss...það má reyndar segja Ólafi F. Magnússyni til hróss að hann er trúr sínu og maður veit svona nokkurn veginn hvar hans áherslur liggja og pólitískur vilji er.

Sama verður ekki sagt um hringlandann og vitleysisganginn í samstarfsflokki hans sem virðist stefna í allar áttir í öllum málum, að minnsta kosti þar til Ólafur segir þeim hvernig þeir eiga að sitja eða standa. Hann hefur nefnilega ágæta stjórn á borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna, nokkuð sem Sjálfstæðismenn hafa ekki sjálfir.

Ólafur F. Magnússon stendur því uppúr í þessari hringavitleysu í Borgarstjórn Reykjavíkur.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-5041779452834848835.post-90521169965610395072008-07-30T16:07:00.000+00:002008-07-30T16:07:00.000+00:00Flestir íslenskir stjórnmálamenn taka ákvarðanir ú...Flestir íslenskir stjórnmálamenn taka ákvarðanir út frá eigin hagsmunum (ota sínum tota - eins og þú sagðir) eða tiltekinna hagsmunahópa (t.d. Sjálfstæðisflokkurinn fyrir LÍÚ). Þeir starfa þannig ekki fyrir almenning. Þess vegna ber ávallt að vantreysta stjórnmálamönnum - og efast um flestar ákvarðanir þeirra og því miður oftast heilindi.

Ákvarðanir þeirra raðast yfirleitt eftir eftirfarandi:
1. Hvað græði ég á þessu?
2. Hvað græða "mínir" umboðsmenn?
3. Er þetta í lagi fyrir almenning?

Er það þetta sem þú kallar að vera "hugrakkur" í pólitík?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-5041779452834848835.post-12385969803675198492008-07-30T16:05:00.000+00:002008-07-30T16:05:00.000+00:00Það er a.m.k. tvennt sem er athugavert við þessa g...Það er a.m.k. tvennt sem er athugavert við þessa gjörð.
1. Það virðist vera einungis ein ástæða fyrir þessari valdbeitingu; Ólöf sagðist vilja bíða eftir málefnalegri kynningu á tillögunni ÁÐUR en hún lýsti skoðun sinni. Það er sök hennar. Sem sagt þetta virðist vera ómálefnalegur gjörningur. Ólafur segist vera prinsipp-maður, en mér sýnist hann einvörðungu vera kreddu-maður. Hann myndar sér skoðanir án þess að hlusta á mótrök og vill að aðrir geri það líka.
2. Fólki virðist blöskra að Ólafur virðist vera einráður í öllum sínum ákvörðunum. Við búum við kerfi þar sem flokkar ræða saman innan síns hóps, þar fara fram rökræður og síðan skoðanamyndun. Þetta virðist hafa gilt þegar Björn Ingi var í sama hlutverki. Hvort sem okkur líkaði vel eða illa við ákvarðanir Björns Inga þá var á vbak við hann lítill flokkur sem heitir Framsóknarflokkur. Í Ólafs tilliti virðist vera um að ræða einhvers konar einræði Ólafs, enginn flokkur, engin umræða. Einungis "fulltrúar Ólafs" og ef einhver hefur sjálfstæða skoðun sem ekki fellur að hans kreddum þá fer illa. Það er enginn að segja að hann hafi brotið lög, hann fór að vísu fram úr sjálfum sér að reka hana þar sem að Borgarráð fer með það vald. En fólki fellur ekki í geð slíkt kreddu-einræði. Það veit enginn hvernig ákvarðanir eru teknar. Hann hefur ósköp einfaldlega öll þau völd sem hann vill yfir þeim fulltrúum sem "undir" honum vinna. Slíkt geðjast mér ekki, og það sama vænti ég að gildi um marga aðra. Okkur finnst þetta vera einhvers konar geðþótta-einræði.Anonymousnoreply@blogger.com