þriðjudagur, 2. desember 2008

Vá fyrir fjölmiðladyrunum.

Nú er þetta að vera smart. Hundtryggur lögmaðurinn Hreinn Loftsson er nú kannski að eignast skuldir Moggans og þar með eignir. Þá er þetta þægilegt. Fjölmiðlar eru þá á tveimur höndum hér. Því hlýtur að vera fagnað allt frá Bessastöðum til höfuðstöðva Baugs.

Í því þjóðfélagi sem við byggjum erum fjölmiðlar eiginlega ekki fjórða valdið. Miklu nær að kalla þá þriðja ef ekki hreinlega annað valdið enda spörum við okkur valdastigana hér með því að hafa engin skil á milli löggjafans og framkvæmdavaldsins. Sumir segja svo að framkvæmdavaldið ráði yfir dómstólum! Þá eru stigin enn færri.

Hér þurfum við að skera upp eða öllu heldur að hverfa til þess sem stjórnarskráin segir um þrískiptingu valds. Og gera svo aðra tilraun til að koma lögum um eignarhald á fjölmiðlum í gegnum Bessastaði.

Sjá ekki allir að þetta er orðið hlægilegt? Og þó varla því málið er alvarlegt. Ekkert þjóðfélag getur sætt sig við svona fjölmiðla umhverfi. Mogginn hefur reyndar staðið sig vel undir núverandi ritstjóra en ég get ekki séð að ef Hreinn Loftsson kaupir hann fyrir vin sinn Jón Ásgeir að Ólafur verði langlífur í sínu starfi.

Til þess er Ólafur of mikill fagmaður og virðist ekki láta múlbinda sig við eigendur eins og alsiða virðist hér.

Þetta má ekki ganga eftir.

Röggi.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú misskilur tilvísunina. Fjórða valdið, eins fjölmiðlar eru stundum kallaðir, kemur þrískiptingu ríkisvaldsins ekkert við, heldur vísar til stéttanna þriggja sem áttu fulltrúa á þingi í Bretlandi á 19. öld. Lávarður að nafni Carlyle benti á að fjórða stéttinn, blaðamenn, ætti ekki fulltrúa á þingi en væri þó valdameiri en hinar þrjár stéttirnar til samans.

Nafnlaus sagði...

Skemmtilegir svona forpokaðir íhaldsmenn eins og Röggi.
Þeir gera bloggið skemmtilegt

Nafnlaus sagði...

Fjórða valdið er stundum til sölu eins dæmin sanna

Nafnlaus sagði...

Hvað eruð þið að rugla.
Ef það er svo að Hreinn Loftsson sé að kaupa sig iní árvakur þá er fréttamennska á Íslandi DAUÐ.
Þá eru dagblöð landsins, öll tímarit, helmingur sjónnvarpsstöðva o.fl. á sömu höndum.
Það eru voðaleg tíðindi. Ef þetta er tilfellið.
Og þið röflið um pólitíska sýn Rögga.
Skiptir það máli?

Nafnlaus sagði...

Þetta er ekkert nýtt. Fréttarmiðlar á íslandi hafa aldrei verið frjálsir fyrr en netmiðlarnir komu. WAKE UP

Nafnlaus sagði...

joð

Það má ekki gerast. Aldrei! Ef að fjölmiðlar hafa aldrei verið frjálsir eins og einn bréfritarinn segir, hvað gerist þá ef Baugsnáhirðin nær að gera þetta ætlunarverk sitt að veruleika?