mánudagur, 21. nóvember 2011

Björn Valur mælir styrk

Það er nokkrar leiðir til að túlka sigur Bjarna Ben í formannskjörinu um helgina. Andstæðingar flokksins reyna auðvitað að telja sér trú um að það að leggja afar sterkan frambjóðanda í lýðræðislegri kosningu sé ósigur.

Gott dæmi um mann sem hefur laskaða pólitíska sýn á þetta er Björn Valur Gíslason sem telur væntanlega að Steingrímur Sigfússon sé gríðarsterkur á formannsstóli VG vegna þess að enginn alvöru frambjóðandi bauð sig fram gegn honum þrátt fyrir að flokkurinn sé í raun í tætlum og viti ekkert hver hann er, hvaðan hann er að koma né hvert hann er að fara margklofinn og á þó enn inni að minnsta kosti eitt tilbrigði við klofning enn!

Það finnst Birni blessuðum merki um styrk og stefnufestu. Þegar öll hjörðin situr og stendur eins og formaðurinn vill þrátt fyrir að allt skíðlogi stafna á milli. Þannig höfum við reyndar vanist því að flokkarnir "skipuleggi" fundina og því er Birni er vorkun að vissu leyti.

Styrktarmælistika þingmannsins tekur ekki kipp fyrr en augljóst er að sitjandi formaður hefur drepið svo niður alla andstöðu við sína eigin ríkjandi skoðun að óhætt er að blása til fundar. Þá mæti Björn Valur og allir hinir sem eru ekki sammála um neitt og klappa þegar á að klappa.

Og svo mætir aðalritarinn og segir fjölmiðlum að allt sé í fína af því að allir klöppuðu í takti. Nei, það eru nú ekki vandræðin á slíkum bæjum. Alveg eins og í Sovét í den....

Þannig framgangsmáta sér þingmaðurinn strax sem sigur en veikleika flokka sem bjóða upp á kosningar milli tveggja öflugra aðila. Að ég tali nú ekki um fund þar sem fólk tekst á um hluti sem allir vita að ágreiningur er um.

Björn Valur klikkar bara helst ekki.

Röggi

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu dottinn úr liðinu í körfuboltanum?

Nafnlaus sagði...

Er nú ekki kominn tími til að rifja upp að Björn Valur sveik og setti sína eigin fjölskyldu og vini á hausinn? Þetta fólk talar ekki við hann í dag og sér ástæðu tilað skrifa um þetta í blöðunum. Björn Valur er eins ógeðfelldur náungi og hægt er að vera....Steingrímur ósatt.is...Svavar von Stasi Icesave snillingur ásamt Indriða mynda eitthvað ógeðslegustu pólitísku klíku frá upphafi homo sapiens.

Nafnlaus sagði...

Björn Valur er maður sem tekst að stíga í alla drullupolla sem á vegi hans verða. Slíkt segir mikið um innrætið.

Nafnlaus sagði...

Góður pistill, Röggi! Tek undir hvert orð!
kv.
Ómar

Nafnlaus sagði...

Björn Valur kemur við kauninn hjá fokking FLokksdruslum.

Nafnlaus sagði...

Alltaf gaman að lesa Rögga