fimmtudagur, 28. ágúst 2008

Biskupinn.

Ég hef áður skrifað um Sigurbjörn biskup og skammast mín hreint ekki fyrir að gera það aftur nú þegar hann er genginn. Hann var einhvern veginn Biskupinn með stóru béi.

Yfir honum var alltaf einhver augljós viska. Yfirvegun og festa en samt mildi. Í mínum huga alger yfirburðamaður alla tíð. Aldrei yfirborðskenndur sem hefur loðað við suma biskupa. Þeir hafa allir verið að reyna svo mikið að vera biskupar, leiðtogar. Sigurbjörn hafði ekkert fyrir því. Hann var biskup.

Auðvelt og áreynslulaust að hlusta á hann. Laus við helgislepju og talaði mannamál. Fræðimaður af guðs náð og tókst að vera áhugaverður og lifandi en ekki skraufþurr eins og títt er um fulltrúa Guðs hér á jörð.

Ég fattaði fyrst hvað lifandi trú er þegar ég fór að taka eftir Sigurbirni. Enda mun hann lifa með þjóðinni um ókomna tíð.

Blessuð sé minning hans.

Röggi.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

sællRöggi , þetta er í fyrsta skipti sem ég kommenta á blogg, er trúlaus en þvílíkur yfirburðarmaður sem dr. Sigurbjörn var

Nafnlaus sagði...

"...augljós viska sem öllum virtist ljós." ????

Röggi sagði...

Fín ábending!