föstudagur, 11. september 2009

Ætlar ríkisstjórnin að styðja nýtingu auðlinda?

Mikið verður gaman að sjá hvernig vinstri stjórnin tekur á sameiginlegum hugmyndum SA og verkalýðshreyfingar um stóryðju og virkjanir. Ríkisstjórnin hefur einna helst séð lausnina í tómum vösum skattgreiðenda bæði einstaklinga og atvinnulífs. það hefði auðvitað ekki átt að koma nokkrum manni á óvart.

Ef Steingrímur og Ögmundur réðu værum við öll skattpíndir ríkisstarfsmenn í umsjá þeirra sjálfra. Það má ekki verða enda þótt misheppnað regluverk og eftirlit og meingallaðir einstaklingar hafi komið óorði á frelsi einstaklingsins.

Vonandi vakna stjórnvöld af mjög værum blundi sinum og taka til við að hlusta á þá sem finna hitann af atvinnuleysinu og aðgerðaleysinu og vanefndu loforðunum. Og kannski stefnir enn á ný í að VG verði að kokgleypa grundvallarsjónarmið sín um að ekki megi fyrir nokkurn mun koma upp stóryðju eða nýta auðlindir þjóðarinnar.

Röggi

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Held að nú segi kjósendur VG hingað og ekki lengra. Steingrímur J. Sigfússon er búinn að vera hækja undir Samfylkingunni frá því hann skrifaði undir stjórnarsáttmálann við Samfó.

* ESB: VG búnir að ganga á bak orða sinna þar.
* Icesave: VG búnir að ganga bak orða sinna þar
* Virkjanamál: Helguvík í höfn, það þýðir virkjun neðri þjórsá.
* Fiskveiðikvótinn. VG breytti engu þar. Sviku sína kjósendur.
* Gegnsæ stjórnsýsla. Engum dylst að stjórnin hefur farið meira á bakvið almenning í þessu landi en fordæmi eru fyrir.
* Faglegar mannaráðningar. Nú er búið að ráða Einar Karl tvisvar sinnum ólöglega til óskilgreindra verkefna á nokkrum mánuðum. Allt annað í þeim dúrnum.

Í Stuttu máli sagt stendur ekki steinn yfir steini í stefnuskrá VG og þess sem þeir hafa framkvæmt. Kannski að kjósendur þeirra séu þannig fólk að það vill láta segja sér eitt, en horfa svo upp á eitthvað allt annað gerast. Ef svo er, þá er ekki líklegt að byrlega blási fyrir íslensku þjóðinni á meðan þessi ríkisstjórn situr.

Nafnlaus sagði...

Hvað er stóryðja?