mánudagur, 20. september 2010

Er maðurinn klikk?

Andri Snær Magnason rithöfundur var í kastljósinu áðan. Hann er ekki eins skemmtilegur og mig minnti en greinilega finnst honum hann sjálfur afar skemmtilegur því sjálfsánægja var geggjuð alveg.

Honum finnst skrýtið að vera afgreiddur sem 101 eitthvað eða listaspýra sem hann þó klárlega er en veigrar sér ekki við að kalla þá sem ekki hafa sömu skoðanir og hann klikkaða eða vangefna og gott ef ekki geðveika.

Andri segist hitta menn og koma með tölur og skilur ekkert í því að þeir menn sem stundum eru sérmenntaðir í faginu skuli þá koma sínar eigin tölur. Hvurslags ósvinna er það?? Hann talar flott hann Andri og segist hafa hitt "strákana" á stórum fundum og spurt þá hvort þeir séu vangefnir en þó halda þeir áfram.

Rithöfundurinn bendir á það sem afvega hefur farið og ætlar sér að stöðva alla nýtingu á auðlindum landsins með tilvísan í þannig mál. Hann gleymir því að nú er tekin við ríkisstjórn sem hefur lagt stein í götu framkvæmda sem stundum var búið að heimila og undirbúa og telur þá sem heimildina höfðu stundum vera geðbilaða að hafa farið af stað....

Þeir eru komnir aftur til byggða bændurnir að mótmæla símanum. Í þetta sinnið í líki sjálfumglaðs rithöfundar. Andri Snær er afturhald nútímans og segir sögur af rússneskri mafíu og vondum mönnum erlendum sem enginn vill vinna með. Stórhættulegt fólk sem hefur búið til stór alþjóðleg fyrirtæki sem ætli sér að eyðileggja landið okkar. Þessu kastar hann fram í kastljósi og kannski telja sumir að þetta sé staðreynd af því að viðmælendurnir geta ekki hrakið fullyrðinguna. Þekkt aðferð sem hefur verið misnotuð af mun verra fólki en Andra Snæ með mælanlegum árangri.

Andri Snær er öfgmaður eins og við höfum stundum séð í kringum veiðarnar okkar. Hann elur á hræðslu sem aldrei hefur verið auðveldara og spilar svo fallega á tilfinningar fólks gagnvart sérfæðingum og opinberum aðilum.

Fólk trúir því að það eigi að virkja ALLT sem mögulega hægt er að virkja og byggja endalaust af álverum og það EITT eigi að bjarga okkur úr vandanum og að vonda fólkið hirði hvorki um hagfræðina í kringum málið né umhverfisþáttinn. Vonda og heimska fólkið. Þetta stef hefur aldrei átt meiri hljómgrunn en nú og skáldið góða rær til sjós....

Og nýtir sér skáldaleyfið til að búa til rússneska mafíu og norræn en þó alþjóðleg glæpafyrirtæki til að krydda söguna.

Er maðurinn klikk??

Röggi

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú bullar bara. Ef menn vilja staldra við og skoða málin betur að þá eru þeir á móti framförum eða eru kommar. Við verðum að hugsa þessi mál út frá fleirru en stundarhagsmunum.

Nafnlaus sagði...

Gott tu minntist ekki a fammistodu motherjans. Hvad var Tryggvi ad gera sig breidan, hann hefur ekkert til malsins ad leggja nema hvad Andri er frabaer rithofundur. En hver vara annras bodskpurinn ad Andri hafi rang fyrir ser eda ad hann er klikkadur, eda bara baedi?

Nafnlaus sagði...

Mér fannst Andri standa sig alveg ágætlega. Það sama verður ekki sagt um Tryggva Þór. Þar fer þó hagfræðingur og hefði átt að geta hrakið eitthvað af því sem Andri hefur haldið fram. Ég man alla vega ekki eftir neinu sem hann sagði nema brandarann um skóginn og ávöxinn sem hékk í einu trénu.

Ég hef ekki sett mig inn í þessi virkjanamál að neinu gagni. En ég var þó í Kröflu á aðal framkvæmdatímanum þar sem var 1976 og vann við fóðringarnar fyrir borholurnar. Því veit ég að það er fullkomlega galið að láta sér detta í hug einhver 300 megavött frá gufuaflsvirkjunum á Norðurlandi fyrir Alcoa á Húsavík. Það kann að vera hægt með tíð og tíma, en það er langur vegur að það gerist eins og að skrúfa frá krana eins og sumir virðast halda. Menn virðast nefnilega gleyma því að þó mikill hiti sé í jörðinni og stutt niður á hann; þá er gufan aðeins orkuberi og til að búa hana til þarf gríðarlegt magn af vatni að renna inn á svæðið og um þann þátt vita menn, því miður, sama og ekkert.

Nafnlaus sagði...

Andri Snær er einn mesti snillingur af núlifandi íslendingum, þótt víðar væri leitað,gjörsamlega brilleraði í Kastljósinu og ekki í fyrsta skipti!

hann fór alveg með Tryggva greyið