þriðjudagur, 1. mars 2011

Landsdómur til bjargar pólitískri æru

Landsdómur kemur saman í næstu viku. Þá verður ákveðið hvort farið verður í fyrstu og þá vonandi einu pólitísku réttarhöld okkar sögu. Því lengra sem líður frá hruninu og því lengra sem líður frá hneykslinu í þinginu þegar ákveðið var að að ákæra Geir þvi fáránlegar leikur sagan þá ákvörðun.

Eina ákvörðunin sem landsdómur getur tekið er að falla frá ákæru og bjarga þar með í leiðinni pólitískri æru þeirra blessuðu þingmanna sem tóku þessa geggjuðu ákvörðun.

Röggi

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvernig dettur þér í hug að landsdómur geti bjargað æru þessa skelfilega fólks?

Skömm þess verður söm og áður falli landsdómur frá ákæru.

Þetta fólk vill pólitíska hefnd.

Þetta snýst um hefndarþorsta og öfga.

Landsdómur breytir engu um það.

Nafnlaus sagði...

Er það hlutverk Landsdóms að bjarga pólitískri æru þingmanna?

Þorsteinn Úlfar

Nafnlaus sagði...

Þeir sem stóðu að þessari aðför gegn Geir, munu gjalda fyrir það dýru verði.

Megi hver sú hönd visna sem greiddi atkvæði MEÐ því að ákæra Geir.