þriðjudagur, 13. nóvember 2007

Geir Ólafsson gefur út disk.

Stór dagur í Íslenskri tónlistarsögu í dag því meistari Geir Ólafsson gefur út sinn annan disk. Er með þrusuband á bakvið sig. 20 manna stórsveit sem hjálpar kallinum.

Ég hef með eindæmum gaman að drengnum. Vilji hans til að verða frægur hefur skilað honum talsverðri frægð. Ekki oft sem fólk sem vill láta kalla sig listamenn orða hlutina þannig að frægð sé málið en listin sjálf aukaatriði.

Ekki verður á móti mælt að skemmtanagildi Geirs er töluvert. Hann liggur mitt á milli Leoncie og Hallbjörns Hjartarssonar. Hefur gríðarlega gaman að sjálfum sér og það hjálpar.

Vona að mogginn fari eitthvað mildari höndum um þennan disk en hinn fyrri sem hann gaf út. Mig minnir að það hafi verið hinn orðprúði Dr Gunni sem slátraði afurðinni og fyrirögnin var eftirminnileg mjög.

"Ekki meir Geir"

Röggi.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það var orðprúður undirritaður sem skrifaði umræddan dóm.

Röggi sagði...

Það leiðréttist hér með. Síst af öllu vildi ég hafa af þér þessa mögnuðu grein.