sunnudagur, 26. október 2008

Stækkum álverið.

Hvenær ætli verði bankað upp á hjá mér og mér boðið að skrifa upp á það að kosið verði aftur um deiliskipulag hér í Hafnarfirði? Þá gefst tækifæri til að leiðrétta fyrri kosningu sem kom í veg fyrir að álverið hér fengi þá stækkun sem lofað hafði verið.

Pólitískt hugleysið í Lúlla bæjó kom í veg fyrir að staðið yrði við loforðin. Nú er lag og ekki eftir neinu að bíða enda hefur þessi vinnustaður aldrei truflað nokkurn mann hvorki hér í Hafnarfirði né annarsstaðar.

Bíð með penna í hönd...

Röggi.

p.s. Ég bý á völlunum....

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er undirsktiftalisti á n1 á lækjargötu. Ef þú ert spenntur fyrir stærra álveri

Nafnlaus sagði...

Bíddur er álverð ekki að hrapa nú? Held að menn séu að hætta við Helguvík í bili Eigum við að gefa þeim í Rio Tinto rafmagnið?

Nafnlaus sagði...

Þú fylgist lítið með heimsfréttum.
Það er komin heimskreppa , allavega tæknileg heimskreppa. Olíuverð er í frjálusu og óstýrðu falli- sama er með ál á mörkuðum.Enginn veit hvernig fjármálakerfið (in) virka lengur.Við orðin bónbjargarfólk- gjaldþrota.
Við verðum eingöngu að treysta á okkur sjálf næstu árin - með nánast allt.
Byggja álver hér ? Gleymum því.. eða hver ætti svo sem að hafa áhuga á að byggja álver hér í hrundum fjármálaheimi ???

Nafnlaus sagði...

gott að vita að enn eigum við Íslendingar hugmyndaríka menn með frumlega hugsun

Nafnlaus sagði...

Er ekki tæpt ár síðan þetta var felld með stæl? Viltu bara láta kjósa aftur og aftur þangað til þú færð niðurstöðu sem þér líkar? Þetta minnir á ESB í Noregi. Þar er búið að kjósa þrisvar sinnum um ESB aðild, og fella það jafn oft. Þetta er vægast sagt vafasamt.

Annars er lítil hætta á að nokkur álver verði byggð á næstunni, og líklega ekki stækkuð. Álverð fór í síðustu viku niður fyrir 10 dollara, sem hefur aldrei gerst áður.

Aðeins tvisvar sinnum á síðustu 10 árum hefur álverð farið niður fyrir 20 dollara, minnir að í annað skiptið hafi það verið út af 11. sept., en þá rétti það sig við fljótt. Álverð hefur annars verið nokkuð stöðugt síðasta áratuginn, 35-45 dollarar. 9 dollarar er þess vegna algjört hrun. Hlutabréf í alcoa hafa lækkað úr tæpum 30 dollurum á hlut fyrir mánuði síðan, og niður í um 9 dollara á föstudag:

http://quotes.nasdaq.com/quote.dll?page=charting&mode=basics&selected=AA&symbol=AA&timeframe=1m&charttype=line

Á fréttavef Víkurfrétta má lesa tilkynningu frá Century Aluminium. Þeir eru eitthvað að draga í land:

http://www.vf.is/Frettir/37935/default.aspx

Hvort þeir seu að draga sig út í bili verður hver að dæma fyrir sig.

Nafnlaus sagði...

Stækkun ISALs felur í sér um 4 til 5 hundruð milljarða innspýtingu í þjóðfélagið
Virkjum + stækkun þúsundir starfa skapast við framkvæmdir allar tekjur af stækkun eru gjaldeyrir 60% af kostnaði verða eftir í landinu eða um tæpir 3 hundrið milljarðar sem er hærri upphæð en alþjóða bankinn lánar.
ISAL selur ekki né framleiðir hráál heldur hálfunnar vöru sem selda á milli 25 til 30% hærra verði en heimsmarkaðsverð sé markaðsverð 2000$ þá er verð til ISALs 2400 til 2500$.
Bæði álverin Reyðarál og Norðurál voru sett á laggirnar þegar álverð var um 1600$ á tonnið.
Í gegnum tíðina hefur álverð verið háð sveiflum.

Nafnlaus sagði...

Fyrirtæki sem er búið að lækka í virði um tæp 80% á síðustu 52 vikum er ekki að fara að gera eitt eða neitt á næstunni:

http://topics.nytimes.com/top/news/business/companies/century-aluminum-company/index.html

Ef þessi linkur með gengi Century aluminium er skoðaður, þá hlýtur hver að sjá að fyrirtækið er ekki að fara út í neinar framkvæmdir á næstu mánuðum. Því miður.

Nafnlaus sagði...

Það gegnir öðru máli hjá ISAL verði kosið aftur um deiluskipulagið er þeir tilbúnir að skoða stöðuna og hefja framkvæmdir.