sunnudagur, 26. október 2008

VG.

Fáir velkjast í vafa um það hvar ég er staðsettur í stjórnmálum. það kemur því ekki á óvart að ég finni mig knúinn til þess einn ganginn enn að skrifa um VG.

Forystumenn flokksins fjargviðrast núna út í stjórnvöld sem leggja nótt við dag til að bjarga okkur úr fpraðinu sem bankarnir komu okkur í. Ekkert þykir VG vera nógu gott og tortryggnin ræður algerlega för.

Steingrímur talar eins og við höfum um fjölmarga góða kosti að velja. Hitt nátttröllið, Ögmundur, skammast yfir því að stjórnvöld ætli að skuldsetja ríkissjóð án umboðs!

Ég veit sjálfur ekki hvaða umboð vinstri stjórnir síðustu aldar höfðu til að skuldsetja ríkissjóð en í þeirri stöðu sem nú er upp komin er ekkert annað í stöðunni. Um það eru að ég held allir sammála nema þessi tveir.

Ég var og er á móti, taktíkin þeirra verður til þess að þeir eru algerlega vonlaus valkostur þegar kemur að því að raða saman ríkisstjórnum. Þeir hafa alltaf hreina samvisku enda gerir þessi flokkur í raun ekkert. Annað en að vera á móti.

Til þess að VG verði valkostur þarf flokkurinn að losa sig við Steingrím og Ögmund úr forsvari. VG á nefnilega þrælefnilegan varaformann sem gæti fært flokkinn eitthvað inn í nútímann.

Þá verður kannski hægt að líta VG. Í dag er er þeir óravegu frá að vera nothæfur flokkur.

Röggi.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Finnst þér skrýtið að stjórnmálamenn sem komu landinu á kaldan klaka sé ekki sjálfkrafa treyst til að bjarga málunum?

Nafnlaus sagði...

"Forystumenn flokksins fjargviðrast núna út í stjórnvöld sem leggja nótt við dag til að bjarga okkur úr fpraðinu sem bankarnir komu okkur í."

Alltaf jafn ferkantaður,
"sem bankarnir komu okkur í"
Þú virðist alltaf eiga svo gott með að gleyma ábyrgð "félaga" þinna í þessu vandamáli þjóðarinnar.

Steini

Oddur Ólafsson sagði...

Vá, þetta var alveg vonlaus pistill.

En haltu endilega áfram að verja og kjósa þá sem eru að gera þig gjaldþrota.

Nafnlaus sagði...

Sjálfstæðisflokkurinn er skipulögð glæpsamtök
Árni Johnsen er líklega heiðarlegasti þingmaðurinn í hópnum!

Nafnlaus sagði...

Röggi Litli

Til hversu viltu nota VG? Samstarf í Ríkisstjórn? Ha, ha ha

Þið eigið engan kost annan en þann að starfa með (ef hann umber ykkur) langstærsta flokki landsins Samfylkingunni sem vill ESB aðilarviðræður strax og upptöku Evru, líkt og yfir 70% af þjóðinni.

Hvað lærðir þú eiginlega? Ertu kannski bara útskrifaður úr Sjálfstæðisskólanum í Valhöll?

Nafnlaus sagði...

P.S. Maður notar hvorki fólk né flokka, Röggi Litli, heldur starfar maður með þeim....

Þú verður að fara skilja þetta.