Bíð spenntur eftir beinni útsendingu frá aukafundi sveitastjórnar Þingeyjarsveitar. Hef heyrt að ungliðahreyfingar sumra flokka hvetji fólk til að fjölmenna á fundinn til að stunda borgaralega óhlýðni og andæfa. Enda full ástæða til.
Þar er meirihlutinn fallinn af því að einn fulltrúinn skipti um lið. Slík óhæfa er að sjálfsögðu ekkert annað en svik jafnvel þó fulltrúinn haldi því fram að þetta geri hann af prinsippástæðum.
Tómt vesen á þessum prinsippmönnum alltaf.
Röggi.
föstudagur, 29. febrúar 2008
Sprunginn meirihluti.
ritaði Röggi kl 08:56
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
"Fíflagangur sá sem við sáum í borgsrstjórn í gær á ekkert skylt við réttinn til að andæfa. Tilraun til þess að skemma og lítilsvirða fullkomlega löglegan gjörning er í besta falli dónaskapur og móðgun við lýðræðið."
Í þessum pistli segir þú fullt tilefni til óhlýðni. Með hliðsjón af fyrri pistlum þínum um slíka "gjörninga" gerir ég ráð fyrir að þessi fundur sé þá ólöglegur. Annars er þetta dónaskapur og mógun við lýðræðið samkv. þínum kokkabókum.
Held að þeir listar sem þarna eru hafi enga ungliðahreyfingar, annar heitir E og hinn J, eru held ég bara tvær þverpólitískar fylkingar í sveitinni.
Er samt ekki viss, Raggi Bjarna veit þetta eflaust.
He he. Engar ungliðahreyfingar hér á ferð en aldrei þessu vant voru áhorfendur á sveitarstjórnarfundi. Þeir fengu kaffi og alles. En það kemur ennþá fyrir að stjórnmálamenn standi við það sem þeir segja í kosningabaráttu og það er bara það sem er í raun að gerast. Svei mér þá.
Skrifa ummæli